Raðhús á Torrevieja til leigu, 3 svefnherbergi, 2 baðherbergi. Frábærlega staðsett.
Stofa og borðstofa
Á fyrstu hæð er góð stofa ásamt borðstofu, þar er sjónvarp með fjölda sjónvarpsrása, DVD spilari og útvarp með CD spilara.
Góður svefnsófi er í stofunni og þaðan er hægt að ganga beint út á flísalagða verönd umhverfis húsið, þar eru sólbekkir, borð,stólar og gasgrill. Loftkæling er í stofunni.
Eldhús
Eldhús er á 1. hæð, bjart og vel búið með ísskáp, uppþvottavél, kaffivél, brauðrist, hraðsuðuketill, örbylgjuofn og öll helstu áhöld til matargerðar. Borðbúnaður er fyrir 8 manns.
Svefnherbergin eru þrjú
Herbergi nr. 1 er á fyrstu hæð,með hjónarúmi og góðum skápum.
Herbergi nr. 2 er á annari hæð, með fjórum einstaklingsrúmum og skápum.
Herbergi nr. 3 er á annari hæð, með hjónarúmi og rúmgóðu skápum, úr hjónaherbergi er gengið út á svalir..
Loftkæling er í báðum svefnherbergjum á annarri hæð en loftkæling í stofu nýtist hjónaherbergi á fyrstu hæð.
Einnig eru loftviftur í öllum svefnherbergjum. Sængur, koddar og rúmföt fylgja.
Baðherbergin eru tvö
Á 1. hæð er baðherbergi með salerni, vaski, sturtu og lítilli innréttingu.
Á 2. hæð er gott baðherbergi með salerni, vaski, rúmgóðri sturtu og lítilli innréttingu.
Baðhandklæði fylgja húsinu og einnig er hárblásari.
Kjallari þar sem er þvottavél
Svalir
Tvennar svalir eru á húsinu, út frá hjónaherbergi á annarri hæð eru rúmgóðar svalir þar sem hægt er að hafa borð og stólar. Á þriðju hæð hússins eru góðar sólar svalir með útsýni yfir fallegt hverfið.
Sundlaugargarður
Stór sameiginlegur sundlaugargarður er nálægt húsinu, þar er sundlaug með barnalaug, salerni og sturtur og þangað er hægt að fara með sólbekki og slaka á við sundlaugina.
Hverfið og næsta umhverfi
Húsið er vel staðsett og er hægt að segja að nánast allt sé í göngufæri. Aðeins tekur nokkrar mínútur að labba að Habaneras verslunarmiðstöðinni og þar er einnig stór Carrefour verslun þar sem gott er að versla í matinn. Aquapolis vatnsrennibrautagarðurinn í Torrevieja er í göngufæri, einnig miðbær Torrevieja, föstudagsmarkaðurinn, tivolí, ströndin og mikið af góðum veitingastöðum svo ekki er nauðsynlegt af hafa bíl þegar dvalið er þarna.
Agregue este mapa a su sitio web;
Utilizamos cookies y otras tecnologías de seguimiento para mejorar su experiencia de navegación en nuestro sitio web, mostrarle contenido personalizado y anuncios dirigidos, analizar el tráfico de nuestro sitio web y comprender de dónde provienen nuestros visitantes.. Política de privacidad